Nú er allt umferð

15.2.2021 ~ 3 mín

Ég leit á safn með vini mínum. Nú þegar ég reyni að gera mér mynd af gest­unum á safn­inu, þá get ég ekki full­yrt að þau hafi verið með grímur. Eða jú, ég get full­yrt það því ég veit að almennt og yfir­leitt gengur fólk með grímur í svona rýmum þessa dagana, þess er kraf­ist og það er skyn­sam­legt en fyrst og fremst er það stað­reynd, orðinn hlutur, staða mála. Maður tekur eftir frávik­unum – ég hefði tekið eftir því ef þau hefðu ekki verið með grímur. Þannig veit ég eigin­lega að allir gest­irnir voru grímu­klæddir, en ég man það ekki – ég hef enga mynd af fólk­inu með grím­urnar því ég leit ekki framan í það. Eða varla. Rétt svo. Eigin­lega ekki. Það er orðið venju­legt, þegar ég fer um rými, í grímu­skyld­unni, og ég geri ráð fyrir að það eigi við um fleiri. Útlend­ingum hefur lengi þótt einkenni­legt hvað Íslend­ingar horfa mikið á andlit annars fólks í almanna­rými, sem er sjálfsagt smábæj­ar­vani, að gá hvort þar er á ferð einhver sem maður þekkir. Ekki núna, ekki lengur, eina andlitið sem ég tek eftir er andlit hvers sem ég mæli mér mót við og fer samferða.

Til viðbótar við hið efnis­lega rými, húsa­kynnin, í þessu tilfelli salinn sem við vorum öll stödd í, fimmtán, tutt­ugu manns, ferð­uð­umst við eftir öðru rými, félags­legu eða lógísku, eins konar rökrásum. Það er auðveld­ara að sjá það fyrir sér sem rökrásir núna, eða bara pípu­lagnir, en það var fyrir pest­ina: við vorum bara tveir í því rými, vinur minn og ég, þrátt fyrir alla hina gesti safns­ins. Nú krefst svolít­illar viðhafnar að fjar­lægja skil­rúmin milli þess­ara rýma eða rása. Við tveir værum ekki í sama rými og annað fólk þarna inni fyrr en einhver hefði borið kennsl á einhvern og heilsað – það gerði enginn. Líklega þekkti ég ekkert af þessu fólki hvort eð er, en í sjálfu sér hef ég ekki hugmynd um það.

Á ferð um þessar rökrásir, þar sem ósýni­legir en nokkuð afdrátt­ar­lausir veggir liggja milli deilda, hreyfum við okkur eins og við erum annars bara vön að gera í bílum, í umferð, samkvæmt umferð­ar­reglum. Í versl­un­ar­mið­stöðvum, til dæmis, stað­næm­ist fólk í hæfi­legri fjar­lægð hvert frá öðru, við ganga­mót, hleypir hinum fram hjá áður en það tekur af stað aftur. Einhvers konar samkomu­lag hefur orðið til, megin­regl­urnar eru líklega að stofn­braut­irnar, breiðu gang­arnir, hafi forgang yfir þá mjórri, þar sem ríkir þá biðskylda – regl­urnar eru þó óljósar, alveg óorð­aðar, og enn í mótun. Við semjum þær og semjum um þær jafnóðum, spinnum reglur með hreyf­ingum og hiki, en við vitum samt þegar einhver svínar á okkur við mjólk­ur­kæl­inn, notar færið sem gefst, tveggja metra bilið milli okkar sem stöndum átekta, og stingur sér fram fyrir.

Endist þetta nógu lengi, þetta ástand, til að breyta umgengni okkar hvert við annað í umferð, í þessum skiln­ingi, verður það varan­legt eða er þetta tíma­bundið frávik og varir bara á meðan grím­urnar skyggja á okkur? Spurn­ingin brennur ekki bein­línis á neinum, held ég, nóg er nú samt, svarið við henni kemur, óhjá­kvæmi­lega, í ljós.