Tamn­ingar

16.2.2017 ~ 3 mín

Guðfræð­ingar fást enn við klípu sem Tómas frá Akvínó glímdi við, síðar Leibniz og fjöldi annarra: ef Guð er algóður, og gerir þar með alltaf það sem er best, getur hann þá líka verið frjáls? Hefur algóð vera val um að gera nokkuð annað en það besta eða útrýmir algjör gæska öllu frelsi?

Tómas komst að niður­stöðu, Leibniz komst að niður­stöðu, og guðfræð­ingar samtím­ans komast líka að niður­stöðu. Þær vekja enn ekki áhuga minn en klípan er forvitni­leg því hún ratar alla leið niður á jörð: getum við bæði verið góð og frjáls? Ef annað er á kostnað hins, er þá samt gefið hvort okkur ber að velja, alltaf og undir öllum kringumstæðum?

Að bera að velja – bara í þessu orða­lagi blasir við þessi gómsæta mótsögn: maður getur ekki valið nema maður ráði, í öllu vali birt­ist þannig frelsi okkar, en í hvert sinn sem við föll­umst á að okkur beri að velja eitt umfram annað lítur út fyrir að við skerðum þetta frelsi í praxis. Málið er vafa­laust flókn­ara en svo – en það blasir ekki við, heldur þarf að laða flækj­una fram í löngu máli og taka á móti henni af guðfræði­legri nennu eða heimspekilegri.

En þetta flaug í mig, þessi forna klípa, þegar ég las fyrir­mæli frá ungum höfundi til eldri höfundar1 um hvaða lærdóm sá síðari ætti að hafa dregið af tilver­unni: aldr­aður höfundur „ætti með réttu“, samkvæmt hinum unga, að vera „vitur, gjaf­mildur, inspírer­andi, kærleiks­ríkur, rétt­sýnn.“ Þess í stað er eldri höfund­ur­inn, aftur samkvæmt þeim yngri, „snákur“, „slím­ugur“, „konungur net- og nátttröll­anna: eins konar fjasandi myrkra­höfð­ingi“, eitt­hvað „staðnað, útbrunnið, óþol­andi“, „belg­ings­legur, karl­kyns, guðs-kryfjandi, predik­andi, gegnum-holt-og-hæðir-sjáandi besserwisser“, „orðinn að stöðn­uðu trölli: bitrum hell­is­búa sem grettir sig framan í sólina þá sjaldan hann skríður fram í dags­ljósið“, „vank­aður þver­haus sem bylur óhindrað tóma vitleysu“ og „megnar ekki að ná hárri elli með meiri reisn en raun ber vitni“, en á á hættu að „enda sem rusl á gólf­inu“. Auk þess sem mér sýnist þeim yngri finn­ast sá eldri svolítið sjálfbirgingslegur.

Og það hvarfl­aði að mér að kannski væri ráð að endur­heimta dýrlinga­trúna sem við glöt­uðum í siða­skipt­unum – sem var aldrei bein­línis trú, en ákveðið hlut­verk, tign­ar­staða, fyrir fólk sem leggur sig fram um að vera gott, alltaf að veru­legu leyti á kostnað frelsis síns. Það gæti ef til vill létt þeim misskiln­ingi af lista­fólki að þetta sé þeirra hlut­verk, og að fagur­fræði sé undir­grein siðfræðinnar.

References
1 Yngri höfund­ur­inn heitir Sverrir og sá eldri Guðbergur en það skiptir ekki öllu.